Komdu með í fimm stjörnu fjallahjólaferð í Noregi
admJ8wW4o2024-05-31T08:17:42+00:00Peloton í samstarfi við ferðaskrifstofuna Slóðir (www.slodir.is) bjóða upp á sannkallaða fimm stjörnu fjallahjólaferð til Noregs dagana 25-30 júní 2024.
Uppselt er í ferðina – bendum á aðrar frábærar ferðir með Leifi og Slóðum.
Í ferðinni verða könnuð ein fremstu fjallahjólasvæði Noregs þar sem tækifæri gefst til að velja úr yfir 100 km af skipulögðum fjallahjólaleiðum á heimsmælikvarða. Fararstjóri og leiðsögumaður verður Leifur Örn Svavarsson.
Við munum kanna svæði bæði í Hallingdal og Telemark þar sem gist verður í hinum stórkostlegu Norrøna Canvas tjaldbúðum.
Nánari upplýsingar og tilhögun má sjá á heimasíðu Slóða.
Kynningarfundur verður í verslun Peloton þann 7. mars kl 17:30 þar sem Leifur Örn mun kynna nánari tilhögun og svara öllum spurningum.
Hámarksfjöldi í ferðina eru 12 manns þannig að nú er um að gera að tryggja sér sæti.