3 04, 2026

STÖCKLI FORPANTANIR VETURINN 26/27 – Láttu drauminn rætast næsta vetur.

2026-04-03T20:48:49+00:00

Bjóðum nú fram til 15. apríl forpantanir á STÖCKLI skíðum fyrir næsta vetur.

Þú velur draumaskíðin og sendir okkur pöntun og skíðin verða svo afhent í október – tilbúin í skemmtanir vetrarins.    Þú greiðir 30% staðfestingargjald við pöntun og afganginn við afhendingu í haust.

Skoðaðu úrval í boði á https://www.stoeckli.ch/

Einnig er gagnlegt að skoða Ski Finder á vef Stöckli þar sem þú finnur þau skíði sem henta þér.  https://www.stoeckli.ch/inten/ski/ski-finder 

Kíktu til okkar í verslunina Klettagörðum 23 þar sem við svörum öllum spurningum eða hafðu samband á peloton@peloton.is.
Tilboðið gildir til 15. apríl 2026 – gildir eki af skíðum á lager.
STÖCKLI FORPANTANIR VETURINN 26/27 – Láttu drauminn rætast næsta vetur.2026-04-03T20:48:49+00:00
29 03, 2026

Vax eða olía? Af hverju fleiri og fleiri hjólreiðamenn eru að skipta yfir í vax

2026-03-29T10:43:44+00:00

Vax eða olía? Af hverju fleiri og fleiri hjólreiðamenn eru að skipta yfir í vax

Ef þú hefur einhvern tímann komið heim með svarta fingur, olíublettaða kálfa og keðju sem virðist þykkari en hún ætti að vera — lestu þá áfram.

Olía hefur verið staðalval í keðjusmurningu í áratugi. Hún er einföld, ódýr og alltaf til staðar. En á undanförnum árum hefur eitthvað verið að breytast í hjólreiðaheiminum: vaxmeðhöndlun á keðju er að ná verulegri fótfestu og ástæðurnar eru margar.

Hvað er vaxmeðhöndlun?

Vaxmeðhöndlun (e. wax lube) er þurr smurning sem byggir á paraffínvaxi í stað olíu. Þegar þú berð vaxið á keðjuna síast það inn í hlekkina og herðist — og skapar þurrt, slétt lag sem verndar og minnkar núning án þess að vera klístrað.

Til eru tvær megintegundir:

  • Drip wax — er dreypt á keðjuna beint úr flösku, á sama hátt og olía. Auðveldasta leiðin til að byrja.
  • Hot wax (immersion wax) — keðjan er tekin af hjólinu og dýft í brætt vax í potti. Meiri upphafsvinna en gefur betri virkni.

Fimm kostir við vax sem skipta máli

  1. Keðjan heldur sér hreinni Þetta er stærsti munurinn í hversdagslegri notkun. Olía er klístrað efni sem grípur í sand, ryk og ohreinindi og breytist smám saman í slípandi deig sem eyðir keðjunni að innan. Vaxið þornar, hylur málminn og dregur ekki að sér óhreinindi eins og olía.
  2. Lengri líftími á keðju og drifbúnaði Þar sem vax dregur í sig mun minni mengun verður núningurinn minni og slitið sömuleiðis. Rannsóknir sýna að keðjur geta enst allt að 30–50% lengur með vaxi en olíu við sambærilegar aðstæður. Þegar keðja kostar 8.000–20.000 kr. (og kassettan enn meira) þá skiptir þetta máli.
  3. Minni núningur í drifbúnaði Þurrt vax veldur minni núningi á milli hlekkja en olía. Í prófunum hefur vax mælst 1–3 vöttum hagstæðara en góð olía við sambærilegar aðstæður; það er kannski lítill munur á leið í kaffi, en skiptir miklu í löngum ferðum og keppnum.
  4. Hreinar hendur og fatnaður Enginn þarf lengur að fá svarta fingur við það eitt að setja keðjuna aftur á. Þurrt vax smitar ekki út frá sér á húð eða fatnað, og geymslan, bílskúrinn eða bíllinn haldast mun hreinni.
  5. Einfaldara viðhald til lengri tíma Fyrsta uppsetningin krefst þess að þú hreinsir keðjuna mjög vel en eftir það er viðhaldið í raun einfaldara en með olíu. Þurrkaðu af keðjunni eftir ferðina og berðu á nýtt þegar þörf er á. Engin svört drulla, engin affitun (degreasing).

Gallar?

Við viljum vera heiðarleg: Vax virkar öðruvísi en olía og því er rétt að hafa eftirfarandi í huga.

  • Í mikilli ringingu þarf að bera á oftar, þar sem vax þolir raka ekki alveg eins vel og olía.
  • Upphafsvinnan er meiri, sér í lagi ef þú ert að byrja með gamla, olíusmurða keðju sem þarf að djúphreinsa fyrst.  Við mælum með að byrja með nýja ónotaða keðju en athugaðu að samt þarf að fjarlægja fituna sem kemur á nýrri keðju með keðjuhreinsi áður en vaxið er sett á.
  • Olía getur hentað betur í mjög langar ferðir (ferðalög) þar sem erfitt er að bera á á leiðinni og aðstæður eru ófyrirsjáanlegar.

Okkar ráð: Á Íslandi, þar sem við höfum blöndu af sól og rigningu, er drip wax frábær byrjun. Það gefur þér flesta kostina án þess að krefjast mikils búnaðar.

Hvernig byrja ég?

Einfaldasta leiðin er að byrja með góðu dripvaxi:

  1. Hreinsaðu keðjuna vandlega með keðjuheinsi (og þurrkaðu hana vel).   Þetta gengur allt betur ef þú þværð hjólið líka vandlega í heild sinni áður en þú byrjar.
  2. Berðu vaxið á, hlekk fyrir hlekk.  2 umferðir að innanverðu og 2 umferðir að utan.
  3. Láttu þorna í að minnsta kosti 2–4 klukkustundir (helst yfir nótt) áður en þú ferð út.
  4. Endurtaktu á 200–300 km fresti, eða þegar keðjan fer að hljóma „þurr“.   Oft er nóg að bæta við einni umferð að innanverðu af og til.

Vörur:

Ef þú vilt taka þetta á næsta stig:

Ef þú vilt fá enn betri árangur og endingu þá mælum við með ídýfingu í vaxpotti.   Athugaðu að vax er fáanlegt með mismunandi eiginleika.  Einnig er hægt að fá íblöndunarefni til að setja í vaxið til til að ná fram mismunandi eiginleikum.   T.d. minnka núning eða auka endingu.   Hafðu samband við okkur eða skoðaðu vörurnar hér að neðan.

  1. Hreinsaðu keðjuna vandlega með keðjuheinsi (og þurrkaðu hana vel).  Að því loknu er gott að þræða hana á eitthvað til að nota til að dýfa í vaxið.  Útbúa má það t.d úr vírherðatré.
  2. Bræddu vaxið í vaxpotti.  Athugaðu að vaxið má ekki hitna um of.  Skoðaðu leiðbeningar framleiðanda varðandi hitastig.
  3. Dýfðu keðjunni í bráðið vaxið láttu hanna vera í vaxbaðinu í ca 5 -10 mín
  4. Láttu keðjuna hanga og þorna í að minnsta kosti 2–4 klukkustundir.  Gott er að láta hana hanga yfir vaxpottinum þannig að efnið leki í hann og nýtist betur.  Þegar vaxið er þurrt er gott að liðka keðjuna og safna því sem molnar af einnig aftur í pottinn.
  5. Settu keðjuna á hjólið og láttu standa yfir nótt.  Dýfing endist lengur eða í 600-800 km.  Nota má drip vax til að bæta á eftir þörfum milli dýfinga.

Vörur:

Við hjá Peloton fögnum spurningum – kíktu við í búðina eða skrifaðu okkur og við hjálpum þér að finna réttu vöruna fyrir þitt hjól og þínar aðstæður.

Sími: 666-1199 | Netfang: peloton@peloton.is Klettagarðar 23 | Opið mán–fös 12–18, lau 11–15

Vax eða olía? Af hverju fleiri og fleiri hjólreiðamenn eru að skipta yfir í vax2026-03-29T10:43:44+00:00
19 08, 2025

Spennandi tímar – Stöckli hjá Peloton

2025-08-19T16:19:09+00:00

Það er okkur hjá Peloton mikil ánægja að bjóða nú í fyrsta sinn á Íslandi hin frábæru skíði frá svissneska framleiðandanum Stöckli.   Stöckli hefur framleitt skíði frá 1935 og hafa allt frá upphafi staðið í fremstu röð framleiðenda á heimsvísu.  Heimsþekktir skíðamenn á borð víð Tina Maze, Victoria Rebensburg og Marco Odermatt hafa keppt á skíðum frá Stöckli.

Við eigum von á fyrstu sendingunum í byrjun október og hlökkum til að kynna þessi frábæru skíði hér á landi.   Þangað til hvetjum við áhugasama til að hafa samband með sérpantanir eða spurningar.

https://www.stoeckli.ch/

Spennandi tímar – Stöckli hjá Peloton2025-08-19T16:19:09+00:00
3 08, 2025

Hafsteinn Ægir Geirsson nýr þjónustustjóri Peloton

2025-08-03T06:25:09+00:00

Það er okkur mikil ánægja að bjóða velkominn í starf þjónustustjóra, Hafstein Ægi Geirsson.   Hafsteinn þarf lítið að kynna fyrir þeim sem þekkja til í hjólasamfélaginu á Íslandi en hann hefur um áraraðir verið í fremstu röð í flestum greinum hjólreiða og unnið fjölda Íslandsmeistaratitla á glæsilegum ferli.   Hafsteinn á einnig að baki glæstan keppnisferil í siglingum þar sem hann keppti m.a. fyrir Íslands hönd á tvennum ólympíuleikum,

Hafsteinn kemur til okkar frá Toyota á Íslandi þar sem hann hefur unnið undanfarið ár en þar áður hefur hann m.a. sett á stofn og rekið Hjólaþjálfun, og var um langa hríð lykilmaður í þjónustu og á verkstæði hjá Erninum.  Hafsteinn tekur við kyndlinum hjá okkur í hlutverki þjónustustjóra sem Sæmundur Guðmundsson hefur gengt undanfarin ár.   Sæmundur er eins og margir vita á leið til Hollands í nám núna í haust og um leið og við bjóðum Hafstein velkominn til starfa, óskum við Sæma góðs gengis þar með miklum þökkum fyrir frábær störf undanfarin ár.

 

Hafsteinn Ægir Geirsson nýr þjónustustjóri Peloton2025-08-03T06:25:09+00:00
18 06, 2025

PIrelli – nú hjá Peloton

2025-06-18T13:26:36+00:00

Við erum alltaf að bæta við vöruúrvalið hjá okkur og nú höfum við bætt í safni dekkjum og fylgihlutum frá hinum heimsþekkta ítalska framleiðanda Pirelli.

Eins og margir vita hefur Pirelli hannað og framleitt dekk fyrir bíla og akstursíþróttir um áratuga skeið og eru í fremstu röð í öllum tegundum akstursíþrótta.  Pirelli býður afar gott úrval af dekkjum og fylgihlutum fyrir allar tegundir reiðhjóla, götuhjól, malar- og utanvegahjól, og fjallahjól.   Það er ekki tilviljun að fjölmargir þekktustu reiðhjólaframleiðendur heims velja dekk frá Pirelli á sín hjól.

Fyrsta sendingin frá Pirelli er komin í hús og úrvalið má sjá í vefversluninni https://www.peloton.is/shop/

Hlökkum til að sjá þig.

PIrelli – nú hjá Peloton2025-06-18T13:26:36+00:00
23 10, 2023

Hestra – nú hjá Peloton

2023-10-23T13:33:58+00:00

Það er okkur hjá Peloton mikil ánægja að bjóða vörur frá sænska fyrirtækinu Hestra.

Árið 1936 var fyrirtækið Hestra stofnað í samnefndum bæ í sænsku Smálöndunum.   Frá upphafi hefur fyrirtækið sérhæft sig í framleiðslu á hönskum og vettlingum.  Fyrstu árin voru vörunar hugsaðar fyrir skógarhögg og erfiða útivinnu en fljótlega hófst framleiðsla á hönskum og -vettlingum fyrir skíðaiðkun og aðrar vetraríþróttir sem hefur verið sérstaða þeirra til dagsins í dag.

Í dag framleiðir Hestra yfir 2 milljónir af hönskum og vettlingum í yfir 400 mismunandi útgáfum á hverju ári.    Okkar markmið er að bjóða sem best úrval af vörum frá Hestra bæði fyrir  vetur og sumar.     Fyrsta sendingin er að lenda hjá okkur og má sjá úrvalið í vefversluninni okkar  https://www.peloton.is/brand/hestra .  Við erum að sjálfsögðu með allar vörurnar í versluninni Klettagörðum 23 þar sem þú getur komið og mátað.

Hlökkum til að sjá þig.

Hestra – nú hjá Peloton2023-10-23T13:33:58+00:00
10 04, 2023

Allt sem þú þarft að vita um rafhjól

2025-11-09T22:29:22+00:00

Peloton býður mikið úrval rafhjóla frá Bianchi og Yeti og Wilier.

Rafhjól eru frábær ferðamáti innanbæjar til að hjóla í og úr vinnu eða til að sinna hvers konar erindum. Þú þarft ekki að vera í sérstöku formi til að hjóla á rafhjóli þar sem hjólið léttir sjálfkrafa undir með þér þegar á þarf að halda t.d. upp brekkur eða í mótvindi. Þú getur þannig komist til vinnu án þess að svitna eða þurfa endilega að vera með föt til skiptanna.   Rafhjól eru líka frábær afþreyingarkostur í ferðalögum t.d. í útilegunni eða til að hafa í sumarbústaðnum.

Við bjóðum bæði rafdrifin götuhjól sem henta best til nota við samgöngur innanbæjar og fjallahjól sem gera þér kleift að yfirgefa malbikið og njóta útiveru á stígum og öðrum merktum hjólaleiðum.  Rafdrifin fjallahjól gera þér kleift að upplifa náttúru landsins okkar á nýjan hátt þar sem slóðar og stígar hvort sem er á fjöllum eða við bæjarmörkin verða leikvöllurinn.

Það eru nokkur atrið sem er gott að hafa í huga þegar velja á rafhjól.

Mótor – Eldri gerðir rafhjóla voru gjarnan með mótor staðsettan í fram eða afturgjörð hjólsins.  Þessi tegund mótora er nú yfirleitt á útleið og flest hjól í dag eru með mótorinn staðsettan í sveifarhúsi fyrir miðju hjólsins.    Mótor í sveifarhúsi er betur varinn t.d. fyrir óhreinindum og tryggir jafnara og stöðugra viðbragð þegar hjólað er.   Gjarðamótorar gera auk þess erfiðara um vik að sinna viðhaldi t.d. ef gera þarf við sprungið dekk.

Afl mótors, tog og hámarkshraði – Öll rafhjól sem ekki eru skráningarskyld hér á landi hafa hámarksafl mótors sem nemur 250W og mótorstuðningur hættir þegar 25 km/klst hraða er náð.  Hægt er að hjóla hraðar en það fyrir eigin afli meðan fætur duga.  Mótorar geta hins vegar verið með mismunandi tog (e. torque) sem er í raun sambærilegt við það hversu fast eða af hve miklum krafti við stígum á sveifar hjólsins.    Algengt tog í mótorum í dag er á bilinu 55Nm – 85Nm.  Hátt tog í mótor skiptir minna máli ef eingöngu á að nota hjólið innanbæjar eða á tiltölulega góðu vegyfirborði og yfirleitt á jöfnum hraða.   Hærra tog getur gagnast betur í fjallendi eða þegar hjóla þarf upp snarpar brattar brekkur.   Öll rafhjól eru með takka í stýri sem gera kleift að stilla hversu mikla hjálp mótorinn veitir.  Þetta er yfirleitt þannig að hámarksaflið er takmarkað eftir stillingunni upp að 250W í hæstu stillingu.

Rafhlaða og drægni – Stærð og ending rafhlöðu er atriði sem vert er að spá í þegar fest eru kaup á rafhjóli.  Stærð rafhlöðu er mæld í wattstundum (Wh).   Algengar stærðir eru á milli 400-750 Wh.  Yfirleitt er rafhlaðan líka þyngri eftir því sem hún er stærri.    Burtséð frá rafhlöðustærð eru önnur atriði sem hafa oftast meiri áhrif á drægni hjólsins, s.s. brekkur, vindur, óslétt vegyfirborð og þyngd hjóls og hjólreiðamanns.   Uppgefin drægni hjólsins miðar við bestu aðstæður að þessu leyti því er nauðsynlegt að íhuga við hvaða  aðstæður þú ætlar að nota hjólið.   Uppgefin drægni rafhjóla er oftast á bilinu, 80-150 km.

Gírar og demparar – Athugaðu að á rafhjólum þarf hjólreiðamaður að nota gíra hjólsins eins og á hefðbundnum hjólum.   Skipta þarf í léttari gír í brekkum og þegar átak eykst.  Góð notkun á gírum eykur líka drægni hjólsins og endingu rafhlöðu.  Flest rafhjól eru með framdempara til að minnka titring og óþægindi í lengri ferðum.   Fjallahjól geta auk þess verið með dempara að aftan sem auðveldar hjólreiðar utan vega á fjallaslóðum, kindagötum og í grýttu landslagi.  Vert er að skoða hvort gírbúnaður og demparar eru af viðurkenndri tegund.

Bremsur – Rafhjól eru oftast milli 25-35 kg að þyngd og fara oft hraðar en hefðbundin hjól.   Það er því mjög mikilvægt að hafa góðar bremsur og við mælum með að íhuga eingöngu kaup á hjólum með vökvadrifnum diskabremsum.   Eldri og ódýrari rafhjól hafa sést í verslunum með gjarðabremsum sem við mælum ekki með.

Hjálmar og hlífar – Þar sem rafhjól fara oft hraðar en þegar hjólað er á hefðbundnu hjóli er algerlega nauðsynlegt að hafa góðan hjálm.  Ef rafdrifin fjallahjól eru notuð utan vega mælum við eindregið með að nota bakbrynju og hné- / olnbogahlífar.   Ef hraði er mikill í grýttu eða ósléttu landslagi þá er hjálmur með andlitskjálka nauðsynlegur.   Athugið að mikill munur er á hjálmum sem ætlaðir eru til fjallahjólreiða og götuhjólahjálmum.   Fjallahjólahjálmar eru með mun meiri vörn á hnakka og í hliðum.   Hjálma ætti að endurnýja á 3-5 ára fresti og strax ef um slys eða óhapp er að ræða eða ef skemmdir eru sjáanlegar.

Viðhald og umhirða – Nauðsynlegt er að halda hjólinu hreinu, passa upp á loft í dekkjum og að smyrja það reglulega.  Komdu í heimsókn og við sýnum þér hvernig þetta er gert.  Síðan ættir þú að fara með hjólið í skoðun og yfirferð á verkstæði á a.m.k. 6 mánaða fresti ef hjólið er notað allt árið en að lágmarki á 12 mánaða fresti annars.   Fjallahjól sem notuð eru mikið utan vega og í drullu, bleytu og ryki þurfa meira viðhald.

Þú getur séð hjólin í vefversluninni okkar  og við erum með hjólin samsett í versluninni og hvetjum þig til að koma við og fá að prófa.  Við bjóðum sveigjanleg greiðslukjör í gegnum samstarfsaðila okkar.  Einnig bjóða margir vinnustaðir samgöngustyrki fyrir umhverfisvæna ferðamáta sem nota má til að fjárfesta í rafhjóli.

Hafðu samband við okkur til að panta eða ef þú hefur spurningar eða vilt vita meira.  Þú ert velkomin/n til okkar í verslunina ef þú ert með spurningar eða ef við getum aðstoðað þig við að komast af stað í þessu frábæra sporti.

Allt sem þú þarft að vita um rafhjól2025-11-09T22:29:22+00:00
20 12, 2022

Peloton samstarfsaðili Yay

2022-12-20T19:10:58+00:00

Nú getur þú keypt gjafabréf hjá Peloton í gegnum Yay appið og verslað fyrir Yay gjafabréf eða inneign hjá Peloton.

Þú finnur Peloton gjafabréf á vefsíðu Yay hérna https://bit.ly/peloton-yay eða í Yay appinu sem er aðgengilegt á Apple App Store og Google Play Store.

Með gjafabréfinu getur þú sent þeim sem þér þykir vænst um fallega kveðju og bréfið berst svo rafrænt til viðtakanda.

Peloton samstarfsaðili Yay2022-12-20T19:10:58+00:00
13 05, 2022

Samstarfssamningur við Ingvar Ómarsson

2022-05-13T16:03:22+00:00

Það er okkur hjá Peloton mikil ánægja að tilkynna um samstarfssamning við Ingvar Ómarsson þar sem Ingvar mun nota búnað frá CeramicSpeed við æfingar og keppni.

Ingvar þarf náttúrulega ekki að kynna fyrir þeim sem fylgst hafa með keppnishjólreiðum á Íslandi undanfarin ár.   Hann hefur keppt í öllum tegundum hjólreiða hér á landi og landað alls 27 íslandsmeistaratitlum.  Ingvar er núverandi Íslandsmeistari í götuhjólreiðum (hópstarti), ólympískum fjallahjólreiðum (XCO), maraþonfjallahjólreiðum (XCM) og Cyclocross.   Ingvar hefur auk þess  verið kosinn hjólreiðamaður ársins 8 ár í röð.   Ingvar hefur undanfarin ár keppt erlendis á mótaröðum UCI í fjallahjólreiðum og á besta árangur Íslendings á þeim vettvangi.

Danska fyrirtækið CeramicSpeed hefur allt frá 1998 verið í fararbroddi á heimsvísu í hönnun og framleiðslu á keramiklegum fyrir keppnishjólreiðar og öðum búnaði tengdum þeim.   CeramicSpeed hafa í áraraðir boðið uppfærslur á gír- og drifbúnaði þar sem sýnt hefur verið fram á umtalsverða aukningu á aflnýtingu með lágmörkun viðnáms í drifrás hjólsins.   Þessu má ná með uppfærslu á sveifarlegum (Bottom Bracket), tannhjólarás í gírskiptum (Oversize Pulley Wheels) og keðju og smurefnum (UFO Drive Products).

Fræðast má um vörur CeramicSpeed á heimasíðu þeirra.  https://www.ceramicspeed.com/en/cycling

Við kappkostum að bjóða allar vörur CeramicSpeed og veitum ráðgjöf um hvernig þú nærð hámarksárangri.   Hafðu samband.

Samstarfssamningur við Ingvar Ómarsson2022-05-13T16:03:22+00:00
31 03, 2022

Samsstarfssamningur við Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur

2022-05-13T10:08:10+00:00

Það er okkur hja Peloton mikið ánægjuefni að kynna samstarf við Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur.

Hólmfríður landaði nýverið þreföldum Íslandsmeistaratitli í alpagreinum.   Hólmfríður er nýlega komin heim frá Ólympíuleikunum í Beijing þar sem hún keppti í svigi, stórsvigi og risasvigi.

Hún mun æfa og keppa með POC búnað frá okkur næsta vetur.  Við óskum henni til hamingju með Íslandsmeistaratitlana og hlökkum til að fylgjast með henni í næstu verkefnum.

Samsstarfssamningur við Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur2022-05-13T10:08:10+00:00
Go to Top