Lýsing

Norröna falketind warm2 Jacket M’s Winter Twig

Þessi þægilegi flísjakki (360g í stærð L) er hannaður fyrir fjallgöngur allt árið en hentar fullkomlega til almennrar útivistar, allt frá gönguferðum til skíðaferða. Við notum Warm2 efnið okkar í þessum jakka þar sem það er endingargott, fljótþornandi og hefur góða einangrunareiginleika og er því hlýtt en jafnfram létt og þægilegt. Aðalefnið er mjúkt Melange flís, 100% endurunnið PES, sem gefur frábært jafnvægi milli hita og þyngdar (192g/m2). Annað efni er prjónað, einhliða ristflís með mikinn teygjanleika. Það samanstendur af 95% endurunnu pólýester og 5% elastani og vegur 178g/m2. Efnið er vottað með Bluesign og GRS. Jakkinn hefur sólarvörn upp á UPF 50+ og er HeiQ fresh FFL meðhöndlað fyrir lyktarvörn. Mikilvægir eiginleikar eru meðal annars þægilegur kragi án nudds á efri brún, rennilás að framan með hökuvörn, miðjuvasar, teygjanlegir hliðarfletir gefa minni þyngd og meiri teygju, teygjanlegar ermar með þumallykkju. fremur rúmt snið (regular fit).

Stærð/gerð: S/M/L/XL/XXL

Nánari upplýsingar á heimasíðu Norröna.