Vax eða olía? Af hverju fleiri og fleiri hjólreiðamenn eru að skipta yfir í vax

Ef þú hefur einhvern tímann komið heim með svarta fingur, olíublettaða kálfa og keðju sem virðist þykkari en hún ætti að vera — lestu þá áfram.

Olía hefur verið staðalval í keðjusmurningu í áratugi. Hún er einföld, ódýr og alltaf til staðar. En á undanförnum árum hefur eitthvað verið að breytast í hjólreiðaheiminum: vaxmeðhöndlun á keðju er að ná verulegri fótfestu og ástæðurnar eru margar.

Hvað er vaxmeðhöndlun?

Vaxmeðhöndlun (e. wax lube) er þurr smurning sem byggir á paraffínvaxi í stað olíu. Þegar þú berð vaxið á keðjuna síast það inn í hlekkina og herðist — og skapar þurrt, slétt lag sem verndar og minnkar núning án þess að vera klístrað.

Til eru tvær megintegundir:

  • Drip wax — er dreypt á keðjuna beint úr flösku, á sama hátt og olía. Auðveldasta leiðin til að byrja.
  • Hot wax (immersion wax) — keðjan er tekin af hjólinu og dýft í brætt vax í potti. Meiri upphafsvinna en gefur betri virkni.

Fimm kostir við vax sem skipta máli

  1. Keðjan heldur sér hreinni Þetta er stærsti munurinn í hversdagslegri notkun. Olía er klístrað efni sem grípur í sand, ryk og ohreinindi og breytist smám saman í slípandi deig sem eyðir keðjunni að innan. Vaxið þornar, hylur málminn og dregur ekki að sér óhreinindi eins og olía.
  2. Lengri líftími á keðju og drifbúnaði Þar sem vax dregur í sig mun minni mengun verður núningurinn minni og slitið sömuleiðis. Rannsóknir sýna að keðjur geta enst allt að 30–50% lengur með vaxi en olíu við sambærilegar aðstæður. Þegar keðja kostar 8.000–20.000 kr. (og kassettan enn meira) þá skiptir þetta máli.
  3. Minni núningur í drifbúnaði Þurrt vax veldur minni núningi á milli hlekkja en olía. Í prófunum hefur vax mælst 1–3 vöttum hagstæðara en góð olía við sambærilegar aðstæður; það er kannski lítill munur á leið í kaffi, en skiptir miklu í löngum ferðum og keppnum.
  4. Hreinar hendur og fatnaður Enginn þarf lengur að fá svarta fingur við það eitt að setja keðjuna aftur á. Þurrt vax smitar ekki út frá sér á húð eða fatnað, og geymslan, bílskúrinn eða bíllinn haldast mun hreinni.
  5. Einfaldara viðhald til lengri tíma Fyrsta uppsetningin krefst þess að þú hreinsir keðjuna mjög vel en eftir það er viðhaldið í raun einfaldara en með olíu. Þurrkaðu af keðjunni eftir ferðina og berðu á nýtt þegar þörf er á. Engin svört drulla, engin affitun (degreasing).

Gallar?

Við viljum vera heiðarleg: Vax virkar öðruvísi en olía og því er rétt að hafa eftirfarandi í huga.

  • Í mikilli ringingu þarf að bera á oftar, þar sem vax þolir raka ekki alveg eins vel og olía.
  • Upphafsvinnan er meiri, sér í lagi ef þú ert að byrja með gamla, olíusmurða keðju sem þarf að djúphreinsa fyrst.  Við mælum með að byrja með nýja ónotaða keðju en athugaðu að samt þarf að fjarlægja fituna sem kemur á nýrri keðju með keðjuhreinsi áður en vaxið er sett á.
  • Olía getur hentað betur í mjög langar ferðir (ferðalög) þar sem erfitt er að bera á á leiðinni og aðstæður eru ófyrirsjáanlegar.

Okkar ráð: Á Íslandi, þar sem við höfum blöndu af sól og rigningu, er drip wax frábær byrjun. Það gefur þér flesta kostina án þess að krefjast mikils búnaðar.

Hvernig byrja ég?

Einfaldasta leiðin er að byrja með góðu dripvaxi:

  1. Hreinsaðu keðjuna vandlega með keðjuheinsi (og þurrkaðu hana vel).   Þetta gengur allt betur ef þú þværð hjólið líka vandlega í heild sinni áður en þú byrjar.
  2. Berðu vaxið á, hlekk fyrir hlekk.  2 umferðir að innanverðu og 2 umferðir að utan.
  3. Láttu þorna í að minnsta kosti 2–4 klukkustundir (helst yfir nótt) áður en þú ferð út.
  4. Endurtaktu á 200–300 km fresti, eða þegar keðjan fer að hljóma „þurr“.   Oft er nóg að bæta við einni umferð að innanverðu af og til.

Vörur:

Ef þú vilt taka þetta á næsta stig:

Ef þú vilt fá enn betri árangur og endingu þá mælum við með ídýfingu í vaxpotti.   Athugaðu að vax er fáanlegt með mismunandi eiginleika.  Einnig er hægt að fá íblöndunarefni til að setja í vaxið til til að ná fram mismunandi eiginleikum.   T.d. minnka núning eða auka endingu.   Hafðu samband við okkur eða skoðaðu vörurnar hér að neðan.

  1. Hreinsaðu keðjuna vandlega með keðjuheinsi (og þurrkaðu hana vel).  Að því loknu er gott að þræða hana á eitthvað til að nota til að dýfa í vaxið.  Útbúa má það t.d úr vírherðatré.
  2. Bræddu vaxið í vaxpotti.  Athugaðu að vaxið má ekki hitna um of.  Skoðaðu leiðbeningar framleiðanda varðandi hitastig.
  3. Dýfðu keðjunni í bráðið vaxið láttu hanna vera í vaxbaðinu í ca 5 -10 mín
  4. Láttu keðjuna hanga og þorna í að minnsta kosti 2–4 klukkustundir.  Gott er að láta hana hanga yfir vaxpottinum þannig að efnið leki í hann og nýtist betur.  Þegar vaxið er þurrt er gott að liðka keðjuna og safna því sem molnar af einnig aftur í pottinn.
  5. Settu keðjuna á hjólið og láttu standa yfir nótt.  Dýfing endist lengur eða í 600-800 km.  Nota má drip vax til að bæta á eftir þörfum milli dýfinga.

Vörur:

Við hjá Peloton fögnum spurningum – kíktu við í búðina eða skrifaðu okkur og við hjálpum þér að finna réttu vöruna fyrir þitt hjól og þínar aðstæður.

Sími: 666-1199 | Netfang: peloton@peloton.is Klettagarðar 23 | Opið mán–fös 12–18, lau 11–15