Lýsing

Silca Elettrico Mini Inflator Ultimate

 

Elettrico ULTIMATE er tilvalin til að taka með sér í ferðalög, í bílinn eða aðra áfangastaði þar sem gólfpumpa er ekki til staðar. Þú getur jafnvel nýtt hana í stað gólfpumpu í bílskúrnum. Það hefur aldrei verið auðveldara að stilla í dekkþrýsting fyrir keppni eða ferð með 3-100 psi stillanlegum, sjálfvirkum mæli. Við höfum meira að segja notað hana til að setja upp dekk slöngulaus (fer eftir dekkjum og felgusamsetningu). • Ultimate er með 3-100psi stillanlegan stafrænan mæli • Nákvæm að 1% • Ultimate hleðsla dugar á við 10 CO2 gashylki • Má setja í handfarangur í flugi • 25-60 mínútna hleðslutími • 222g • 81 x 60 x 32 mm (Ultimate)

 

Nánari upplýsingar á heimasíðu Silca.