Lýsing

Norröna falketind econyl70 28L Pack Indigo Night

Þessi létti bakpoki er gerður fyrir fjallgöngur allt árið og virkar fullkomlega fyrir almenna útivist eins og hjólreiðar, gönguferðir eða skíðaferðir. Við notum 100% endurunnið nælon og pólýester efni sem er einstaklega létt og endingargott auk þess að að vera í samræmi við háa sjálfbærnistaðla okkar. Efnið er endurunnið nælongarn sem unnið er úr úrgangi s.s. út netum  og öðrum nælonúrgangi  Aðalefnið er létt 70D endurunnið ripstop ECONYL® sem er 79 g/m2 með PU húðun sem gefur 2000 mm vatnsheldni. Fóðrið er 70D endurunnið pólýester. Helstu eiginleikar eru: Aðalhólf, topphólf, netefni á snertiflötum, vasi fyrir vatnsblöðru, hjálmnet sem hægt er að festa bæði að framaná eða undir pokann, innri vasi með lyklakrók og a þægilegt mjaðmabelti með lykkju og netvasa. 

Stærð/gerð: One Size

Nánari upplýsingar á heimasíðu Norröna.