Við bjóðum skíða- og brettadeildum íþróttafélaga forpantanir á keppnisvörum úr vetrarlínunni frá POC fyrir veturinn  2024/2025.

Forpantanir gera þér kleift að velja nákvæmlega þær vörur sem þú vilt,  bæði tegund, lit og stærð á besta mögulega verði.  Þú greiðir 30% staðfestingargreiðslu þegar pöntun er staðfest og afganginn við afhendingu sem við gerum ráð fyrir að verði í október 2024.

Við bjóðum ykkur velkomin í heimsókn til okkar í verslunina að Klettagörðum 23 þar sem við bjóðum aðstoð við að finna réttu vörurnar.   Þar getur þú líka mátað hjálma, fatnað eða annað.

Til að panta, smellir þú á pöntunareyðublaðið og hleður því niður á tölvuna þína.   Eyðublaðið er svo opnað í Microsoft Excel eða öðru forriti t.d. Google Sheets.   Þú fyllir inn upplýsingar um þig, nafn, kennitölu, síma og netfang ásamt magni við þær vörur sem þú vilt panta.  Gættu þess að merkja við réttar stærðir og lit. Vörulista ásamt upplýsingar um stærðir má finna hér að neðan.  Verð eru með fyrirvara um verðbreytingar framleiðanda og breytingar á gengi sænsku krónunnar.

Vörulista fyrir POC keppnisllínuna 2024/2025 má sjá hér að neðan.

Pöntunareyðublað

Upplýsingar um stærðir.  

Stærðatafla fyrir POC keppnisgalla

Þú getur skoðað aðrar vörur frá POC í vefversluninni okkar.     

Aðrar pantanir þurfa að berast okkur í síðasta lagi 30.apríl 2024.

Ef þú ert með spurningar eða vilt vita meira, hafðu samband við okkur í síma 666-1199 eða á facebook eða peloton@peloton.is